
Ný útgáfa af vinsælustu byggingarkubbunum frá by Lille Vilde nú í MEGA stórri útgáfu. Í kassanum eru 11 stk af kubbunum góðu en nú er hver kubbur miklu stærri. Þetta sett er sniðugt sem viðbót við hina kubbana eða eitt og sér. Kubbarnir eru frábrugðnir af því leyti að þeir eru mjúkir en stöðugir, ekki hægt að slasa sig á þeim. Foreldrar elska hversu hljóðlátir kubbarnir eru og hvernig þeir vaxa með börnunum.
Kubbarnir eru CE merktir og uppfylla EN71-1-3.
Framleiðandinn mælir með kubbunum fyrir 3ja ára og eldri en við mælum með að meta það út frá hverju barni fyrir sig þar sem að það er misjafnt hvenær börn hætta að setja hluti upp í sig.